Náttúran.is: Þjónustan

Fræðsluefni og kynningar

Náttúran.is býr yfir miklu úrvali af myndefni og textum um náttúru og umhverfi sem henta vel til kennslu á hinum ýmsu skólastigum. Við bjóðum upp á að útbúa sérsniðnar veggmyndir með því mynd- og textaefni sem óskað er eftir. Veggmyndirnar geta verið í þeim stærðum sem henta hverjum og einum. Við bjóðum ferðaþjónustuaðilum og öðrum áhugasömum að fá Græn Reykjavíkurkort til ókeypis dreifingar hjá sér.

Einnig er hægt að fá kynningar til félaga, fyrirtækja, stofnana og skóla og er kynningin þá sérsniðin að áhugasviði eða þörfum hvers hóps fyrir sig. Vægt gjald er tekið fyrir sérhannað prentað efni og kynningar út um allt land. Hafið samband við nature@nature.is eða í síma 483 1500.

Við minnum einnig á að Náttúruspilin eru tilvalið kennslutæki fyrir alla aldurshópa. Vorið 2009 var öllum grunn- og framhaldsskólum í landinu sendur stokkur af Náttúruspilum að gjöf og vorið 2011 öllum leikskólum landsins en Menntamálaráðuneytið gerði það mögulegt með styrkframlögum.

Nú er einnig hægt að birta hin 52 góðu ráð á Náttúruspilunum á öðrum vefsíðum. Öllum er frjálst að nýta sér þjónustuna án endurgjalds. Sjá nánar um netútgáfuna hér.

 

Náttúruspil - 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið. Panta og fá heimsent hér. Stærð 10,8 x 8 cm. Á íslensku en einnig er hægt að fá 8 af spilunum á ensku. Vinsamlegast hafið samband hér nature@nature.is ef óskað er eftir að fá stærra upplag.

„Grænt Reykjavíkurkort“, á annarri hlið, „Húsið og umhverfið“ á hinni. Panta og fá heimsent hér. Stærð 100 x 70 cm. Á ensku og íslensku. Vinsamlegast hafið samband hér nature@nature.is ef óskað er eftir að fá stærra upplag.

Kynningarbæklingur Náttúran gefur góð ráð. Stærð 29,7 x 21 cm, A4. Á íslensku. Vinsamlegast hafið samband hér nature@nature.is ef óskað er eftir að fá bæklinga heimsenda.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
15. febrúar 2012 13:30
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Græn kort Náttúrunnar

Grænt kort 200% á 120x120p grunni

Grænt Íslandskort er samvinnuverkefni Náttúran.is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map® System og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands. Græna Íslandskortið og Græna Reykjavíkurkortið byggja á flokkunarkerfi Green Map og gagnagrunni Grænna síðna Náttúrunnar sem er árangur 8 ára rannsóknarvinnu á vistvænum kostum í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi.

Kortið birtist á íslensku á Natturan.is, ensku á Nature.is og á þýsku á Natur.is, í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem fyrir hendi eru á vefnum. Við gáfum út Grænt Reykjavíkurkort í prentútgáfu haustið 2010 og aftur sumarið 2011. Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að grænþvo neinn sem ekki uppfyllir þau skilyrði sem sett eru við kortagerðina.

Tilgangur grænna korta er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt.

Þeir sem vilja sækja um skráningu á Græna kortið skrifi okkur á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!

Skoða Græna Íslandskortið.

Skoða Græna Reykjavíkurkortið.

Sjá prentútgáfu Græna Reykjavíkurkortsins hér á Náttúrumarkaði.

Ef þú vilt vita meira, gera athugasemdir eða taka þátt í vinnu við kortin, þá skrifaðu okkur á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
6. febrúar 2012 11:48
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Voffi - leitarvél Náttúrunnar

Leitarvél 200% á 120x120p grunni

Voffi er ein „persónan“ í merki Náttúrunnar og tákn fyrir leitarvélina hér á vefnum en hann þefar uppi og vísar þér á það sem þú ert að leita að hvort sem það er hugtak, fyrirtæki eða ákveðin vara. Prufaðu að slá inn það sem þú hefur áhuga á að finna í leitarreitinn hér til hægri á síðunni og smelltu á leita.

Fyrir nýjustu útgáfu Náttúrunnar höfum við þróað leit að vörum á Náttúrumarkaði en hún gefur þér kost á að þrengja leitina enn frekar og finna vörur eftir framleiðanda, merkingu eða vottun. Sjá hér til hægri undir Vöruleit á Náttúrumarkaði.

Þú getur einnig farið beint á Grænar síður og leitað í aðalflokkunum eða slegið inn atriðisorð eða heiti aðilans sem þú leitar að. 

Græna Íslandskortið er enn önnur leið til að leita hér á vefnum. Þú smellir á Grænt Íslandskort og sérð þá þrjá meginflokka sem táknaðir eru með þremur litum þ.e.: bláum fyrir „Sjálfbæran lífsstíl“, grænum fyrir „Náttúruna“ og appelsínugulum fyrir „Menningu og samfélag“.

Ef þú finnur ekki eitthvað sem þú leitar að þá skrifaðu Voffa á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500 og hann hjálpar þér við leitina.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
13. janúar 2012 14:44
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Fréttastefna Náttúrunnar

Fréttir 200% á 120x120p grunni

Fréttagátt fyrir alla
Náttúran.is er óháður regnhlífarvefur og birtir skoðanir allra sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri. Hver sem er getur sent inn frétt og tilkynnt um viðburð. Þær fréttir sem birtar eru á Náttúrunni verða að birtast undir nafni höfundar og ber höfundur einn ábyrgð á skrifum sínum.

Siðferðileg mörk
Náttúran.is áskilur sér rétt til að taka út fréttir og „orð í belg“ sem eru særandi, móðgandi eða geta beinlínis skaðað einhverja persónu, fyrirtæki eða stofnun. Náttúran tekur ekki afstöðu til pólitískra mála en er yfirlýstur málsvari umhverfisins.

Grænar innlendar og erlendar
Grænar íslenskar: Stefna Náttúrunnar er að koma á framfæri öllu því sem fréttnæmt getur talist á sviði náttúru- og umhverfismála á Íslandi. Þar má nefna nýsköpun á sviði vöruþróunar og þjónustu, fundir og ráðstefnur, yfirlýsingar og kærur, ferðamál og útivera, uppskeru og ræktun, sem og allt það sem tengist þeim persónum, félögum, stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast málefninu á einhvern hátt.
Grænar erlendar: Náttúran.is leitast við að tengja Ísland við alþjóðasamfélagið og birtir greinar um þróun umhverfismála hvaðanæva að úr heiminum.

Ritstjóri er Guðrún A. Tryggvadóttir.

Senda frétt eða grein til Náttúrunnar á nature@nature.is.

Sjá veðurkort Náttúrunnar.

Við minnum á RSS fréttafóðrun Náttúrunnar (sjá hér í flipanum til vinstri) og RSS fréttir frá öðrum miðlum hér neðst til hægri á síðunni.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
12. janúar 2012 14:43
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Endurvinnslukortið

Endurvinnsla sorps er ein mikilvægasa leiðin til að minnka ágang á gæði jarðar og ætti að vera sjálfsagður þáttur í hverju fyrirtæki og á hverju heimili. Um 1/7 hluti alls úrgangs fellur frá heimilum en 6/7 frá fyrirtækjum heimsins. Með endurvinnslu eykst meðvitund um hvað við sóum miklu og verðmæt efni komast aftur í umferð og hættuleg efni fá þá meðhöndlun sem þarf til að gera þau minna skaðlega umhverfinu. Reynslan sýnir að endurvinnsla hvetur til minni sóunar og gerir fólk meðvitaðara um ábyrgð sína gagnvart umhverfinu. Skynsamlegast er auðvitað að velja frekar náttúrulegri efni og umbúðaminni vörur og flokka til endurvinnslu það sem endurvinnanlegt er, en alltaf fellur eitthvað til af sorpi, það er óhjákvæmilegt í nútíma þjóðfélagi.

Til þess að einfalda endurvinnsluna og hvetja fólk til að taka þátt í því að minnka magn sorps sem fer óflokkað í heimilistunnuna, engum til gagns né gleði, hefur Náttúran þróað Endurvinnslukortið en það er kort hér á vefnum sem sýnir þér alltaf hvar næsta grenndargám eða endurvinnslustöð í þínu næsta nágrenni er að finna og segir þér einnig hverju er tekið á móti þar.

Skoða Endurvinnslukortið.

Ef þú vilt vita meira, gera athugasemdir eða taka þátt í vinnu við kortin, þá skrifaðu okkur á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
12. janúar 2012 02:14
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

123

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Alaskalúpína getur vaxið og þroskað fræ á hálendinu í 760.m hæð yfir sjó.Hvort Giljaflækja, Rauðsmári ...
Eyjólfur Guðmundsson 16. 02. 2012 21:38:
Vistvæn landbúnaðarafurð
Grunur leikur á að bændur noti merki um vottaða vistvæna framleiðslu án þess að nokkurt ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 02. 2012 08:40:
Auglýst eftir tilnefningum til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Tilnefnd til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs eru í ár; Blái herinn, Eymundur Magnússon í Vallanesi, ...
Guðrún Tryggvadóttir 15. 02. 2012 08:48:
Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: